Gjaldskrá
Tilvísunarskylda í sjúkraþjálfun var afnumin 1. nóvember 2026. Það þýðir að sjúkratryggðir einstaklingar þurfa ekki lengur beiðni frá lækni til að njóta greiðsluþátttöku hins opinbera í sjúkraþjálfun.
Almennt mánaðarlegt hámark í greiðsluþátttökukerfinu árið 2026 er 37.794 kr. Lægra þak gildir fyrir aldraða (67 ára og eldri), öryrkja og börn. Þegar þessu hámarki er náð í almanaksmánuði greiðir einstaklingur ekki frekar í almenna kerfinu þann mánuðinn.
Frá 1. september 2026 leggst sérstakt komugjald á hverja komu til sjúkraþjálfara. Þetta gjald telur ekki upp í mánaðarlega greiðsluþakið og greiðist því fyrir hvern tíma þótt þakinu sé náð.
Sjúkratryggðir almennt: 1.500 kr. fyrir hverja komu
- Aldraðir (67 ára og eldri): 1.000 kr. fyrir hverja komu
- Öryrkjar og endurhæfingarlífeyrisþegar: 500 kr. fyrir hverja komu
- Börn (yngri en 18 ára): 0 kr. (greiða ekkert komugjald)
Hægt er að kanna stöðu einstaklinga innan Sjúkratrygginga Íslands inn í Greiðsluþátttökukerfi SÍ HÉR
